Saturday, May 05, 2007

Pælingar


Var að gera mynd handa krökkunum sem þau gætu litað, m.a. var ein með Hafmeyju og ýmsu lífríki hafsins. Þá fór ég að spá í hvort að það væri til Hafmaður, hvort það væri þá hann Hafmeyjan!!!!! Kíkti á wikipedia og þar var það svart á hvítu Mermaid, Merman og ef það eru bæði kynin þá heitir það Merfolk.

Var í strætó og tók svo eftir að reimin var laus, þannig að ég tróð henni inní skóinn. Hafði svo einhverja þörf fyrir að útskýra þetta fyrir unglinspilti sem hafði orðið vitni af þessu. Ég" nenni hrienlega ekki að reima, ekki einu sinni að setja hana inn og láta hana hanga" Hann" Ég skil það mjög vel, mér finnst það óþægilegt, það sviptir mann frelsinu, það er alveg eins og stelpa".
Því miður lauk samtalinu okkar hér því að ég var að fara að stiga af vagninum, en ég benti honum á að ég væri engin skóreim

No comments: